HMS hefur eftirlit með að skoteldar og flugeldavörur standist lágmarksgæðakröfur og hvort merkingar á þeim séu fullnægjandi. Almenn notkun og sala á skoteldum er óheimil nema á tímabilinu 28. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum þó má selja skotelda í flokki 1 allt árið.
Skoteldar eiga að vera CE-merktir og það þarf leyfi lögreglu til að flytja inn og selja þá.
Flokkar
Skoteldum er skipt í fjóra meginflokka eftir púðurmagni og hættu.
Áður en hægt er að selja skoteld þarf hann að vera CE-merktur. Óleyfilegt er að selja skotelda sem eru ekki CE-merktir til neytenda. Til að geta CE-merkt skoteld þarf framleiðandi að byrja á því að senda vöruna í prófun til tilkynnts aðila sem getur prófað skotelda. Tilkynntur aðili er fyrirtæki sem hefur verið samþykkt sérstaklega af Evrópsku ríki til að meta og prófa skotelda. Ekki er neinn tilkynntur aðili á Íslandi sem getur tekið að sér slíka prófun.
Tilkynnti aðilinn metur svo hvort varan uppfylli lög og staðla. Sé varan í lagi útbýr tilkynnti aðilinn prófunarskýrslur og gerðarviðurkenningu fyrir framleiðanda. Framleiðandi þarf þá að útbúa samræmisyfirlýsingu. Í samræmisyfirlýsingu lýsir framleiðandi því yfir að hann sjálfur beri ábyrgð á því að varan uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til hennar. Að því loknu má CE-merkja vöruna. CE-merkið er því
CE-merkingin verður alltaf eftirfarandi:
XXXX-YY-ZZZZ…
XXXX stendur fyrir númer tilkynnts aðila sem samþykkti vöruna, YY um flokk skoteldsins og ZZZZ… er raðnúmer vörunnar.
Á umbúðum skotelda á að koma fram heiti og heimilisfang framleiðanda og innflytjanda vörunnar og flokkur skotelds. Þá þurfa viðvörunarmerkingar og leiðbeiningar á íslensku að vera á umbúðum skotelda og fer það eftir flokki skotelds hvað á að koma fram. Meira um slíkar merkingar má sjá í staðli ÍST EN 15947 – 3:2015, Flugeldavörur og sprengibúnaður – Flugeldavörur í flokki 1, 2 og 3 – Hluti 3: Lágmarkskröfur um merkingar.
Hafðu í huga
HMS tekið saman nokkur lykilatriði sem gott er að hafa í huga á gamlárskvöld:
Borgartúni 21, 105 Reykjavík.
Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki.
Hafnarstræti 107, 600 Akureyri.
kt: 581219-1480
Mán til fim frá kl. 9:00 – 16:00
Fös frá kl. 9:00 – 14:00