Search
Close this search box.

Leikvallatæki

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur eftirlit með nýjum leikvallatækjum á markaði. Þeir sem flytja inn, framleiðendur, markaðssetja, leigja eða dreifa leikvallatækjum hér á landi eða ætla að flytja þau út til annarra ríkla á EES-svæðinu eiga að geta sýnt fram á að tækið uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til þeirra áður en þau eru sett á markað.

Leikvallatæki eru almenn neytendavara þar af leiðandi eiga þau ekki að vera  CE-merkt og þarf ekki leyfi yfirvalda til að selja þau. Það gilda reglur um hvar má staðsetja leikvallartæki, sjá nánar í reglugerð nr. 1025/2022 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim

Öryggiskröfur fyrir leikvallatæki og merkingar

Leikvallatæki sem seld eru á Evrópska efnahagssvæðinu verða að uppfylla skilyrði laga nr. 134/1995 um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, 4. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerð nr. 1025/2022.

Leikvallatæki eiga að vera þannig úr garði gerð að þau skapi ekki hættu fyrir notendur og uppfylli kröfur sem koma fram í stöðlum um leikvallatæki og undirlag þeirra ÍST EN 1176 og ÍST EN 1177. Þetta er gert með yfirlýsingu framleiðanda, ásamt niðurstöðum prófana þar sem fram koma tæknilegar upplýsingar og einstök leikvallatæki unnin af aðila með sérþekkingu á framangreindum stöðlum.

Leikvallatækjum verða að fylgja allar nauðsynlegar upplýsingar helst á íslensku en annars á ensku eða norðurlandamáli þó ekki finnsku. Upplýsingarnar sem þurfa að fylgja eru m.a.:

  • Leiðbeiningar um uppsetningu og viðhald tækjanna svo og upplýsingar um þá staðla sem framleiðslan byggist á.
  • Teikningar af tækinu fullbúnu og upplýsingar um nauðsynleg verkfæri og önnur hjálpargögn við uppsetningu tækjanna.
  • Upplýsingar um ráðlagða notkun og fyrir hvaða aldurshóp tækið er.
  • Ef tækið er eingöngu til notkunar innanhúss þarf það að koma fram sérstaklega með viðeigandi merkingum. 

Þá eiga tækin að vera merkt framleiðanda, vörumerki hans eða öðru auðkenni. Ef um er að ræða innflutt tæki þá á að koma fram nafn innflytjanda á leikvallatækinu.  

Allar upplýsingar er varða rétta samsetningu, uppsetningu, viðhald og notkun leikvallatækja skulu fylgja með á íslensku.