Mikilvæg ný atriði

Ýmis mikilvæg atriði hafa breyst og bæst við í nýju orkumerkimiðunum. Sem dæmi má nefna orkunýtniflokkana sem hafa verið samræmdir, QR-kóði hefur bæst við og sum myndtákn hafa verið endurgerð.

Meiri upplýsingar má sjá hér fyrir neðan.

Hver eru lykilatriði í nýju orkumerkingunum?

Orkunýtniflokkar

Það eru samræmdir orkunýtniflokkar, A til G, fyrir allar vörur. Orkunýtniflokkarnir A+++, A++ og A+ munu hverfa. Litakóðinn mun ekki breytast, hann hefur orðið meginþáttur í orkumerkimiðanum og gerir hann auðþekkjanlegan og nothæfan.

QR-kóði

Merkimiðinn er tengdur við gagnagrunn gegnum QR-kóða. Í gagnagrunninum eru frekari upplýsingar varðandi orkumerktar vörur. Hann er aðgengilegur með því að skanna kóðann með snjalltæki.

Myndtákn

Flest myndtákn sem sýna vörueiginleika á gamla merkimiðanum eru óbreytt í nýju útgáfunni. Sum hafa þó verið endurgerð og sum eru ný.

Orkunotkun

Orkunotkun varanna er sýnd á meira áberandi og einsleitari hátt í miðhluta merkimiðans. Orkunotkun er ýmist sett fram sem kílóvattsstundir (kWh) á ári við 1000 klukkustunda notkun eða hverjar 100 lotur, allt eftir vöruflokki.

Orkunýtniflokkar

  • Eftir 1. mars 2021 voru engar vörur í orkunýtniflokki A fáanlegar á markaði til að byrja með. Nýju orkunýtnuflokkarnir voru ákvarðaðir þannig að svigrúm væri til frekari nýsköpunar á enn orkunýtnari vörum.
  • Eftir breytingu varð hæsti orkunýtniflokkurinn B eða C, háð vöruflokki og mögulegri þróun á vörum fyrir tilkomu nýja orkumerkimiðans.
  • Nýjum orkunýtniflokkum verður ekki bætt við A til G flokkana í framtíðinni. Til að forðast breytingar á flokkunum verða viðmið þeirra endurskoðuð reglulega með hliðsjón af tækni- og markaðsþróun.

Besti orku­nýtni­flokk­ur eft­ir end­ur­nýj­un orku­merki­miða (með fyr­ir­vara um tækni­þró­un)

VörurNúverandi orkumerkimiðiNýi orkumerkimiðinn
Ísskápar og frystar til heimilisnotaA+++B eða C
VínkælarA+++B eða C
Þvottavélar, 4 kg og meiraA+++B eða C
UppþvottavélarA+++B eða C
Sjónvörp og rafeindaskjáirA+++B eða C
LjósgjafarA++C eða D