Categories
Fræðsluefni Leikföng

Leikföng: 12 góð ráð fyrir jólin

Munið eftir þessum ráðum varðandi öryggi barna allt árið um kring, ekki einungis um jólin.

Leikföng eru vinsælar jólagjafir handa börnum enda eru þau hluti af þroskaferli þeirra. Til þess að leikur barna geti orðið hvað ánægjulegastur og öryggi þeirra tryggt er mikilvægt að neytendur hafi í huga að velja leikfang sem hæfir barninu og að það uppfylli þær öryggiskröfur sem til þess eru gerðar. Því vill HMS benda fólki á að hafa eftirfarandi í huga þegar velja á leikföng:

  1. Lesið alltaf á miðana sem eru á leikfanginu.

Takið eftir ráðleggingum er varða aldur og öryggisatriði – takið þær alvarlega. Kaupið leikföng sem eru CE-merkt. CE-merkið á að vera fast á leikfanginu, á merkimiða eða á umbúðum þess. Ef leikfangið er smátt eða samanstendur af litlum hlutum, þá má finna CE-merkið á merkimiða eða meðfylgjandi bækling. Stundum er það ekki hægt af tæknilegum ástæðum og þá má finna CE-merkið á útstillingarumbúðum eða á sölustandi. Ef CE-merkið sést ekki í gegnum umbúðir leikfangsins þá á það að sjást á umbúðum. CE-merking gefur til kynna að leikfangið hafi verið prófað og það talið uppfylla kröfur Evrópusambandsins um öryggi, heilsu og umhverfisvernd. CE-merking segir hins vegar ekki til um gæði vörunnar og er ekki vottun.

2. Veljið leikföng sem hæfa aldri barnsins, hæfni þess og þroskastigi.

Leikföng sem ekki eru ætluð aldurshópi barnsins geta valdið hættu. Lesið vandlega og fylgið ráðleggingum um aldur. Takið sérstaklega eftir merkinu sem þýðir að leikfangið hæfir ekki börnum yngri en 3ja ára. Munið að þetta merki er viðvörun, ekki ráðlegging.

3. Gefið ekki börnum yngri en 3ja ára leikföng sem innihalda smáa hluti.

Börn hafa tilhneigingu til að setja leikföng upp í munninn og smáir hlutir geta staðið í börnum og valdið köfnun. Kannið hvort tuskudýr með augu, eyru, nef og aðra smáhluti séu kirfilega festir.

4.Fylgið vandlega leiðbeiningum um hvernig setja á saman og nota leikföng.

Geymið leiðbeiningar og upplýsingarnar sem fylgja leikfanginu á öruggum stað.

5. Kaupið leikföng frá traustum söluaðila og traustri vefverslun.

Traustir söluaðilar er umhugað um vörurnar sem þeir selja og hjá þeim er einnig hægt að skila vöru. Minna traustum söluaðilum hættir til að vanrækja þætti er varða heilsu og öryggi og gætu einnig verið að selja fölsuð leikföng. sérstaklega skal gæta að vörum sem seldar eru í vefverslunum, leikföngum sem eru ókeypis og leikföngum sem keypt eru á nytjamörkuðum eða nytjaverslunum.

6. Leiðbeinið börnum við leik.

Gangið úr skugga um það að leikið sé með leikföngin líkt og gert er ráð fyrir og að það hæfi aldri og getu barnsins. Hvað varðar sum leikföng, s.s. hlaupahjól, línuskauta og hjól skal ætíð gæta þess að notaðir séu hjálmar og aðrar viðeigandi hlífar.

7. Skoðið leikföngin reglulega.

Skoðið leikföngin reglulega til að kanna hvort þau hafi orðið fyrir hnjaski sem gæti leitt til þess að barnið gæti meitt sig á því eða valdið annarri hættu gagnvart heilsu þess eða öryggi. Fleygið strax leikföngum sem eru brotin eða skemmd.

8. Tryggið að öll leikföng sem eru ætluð eldri börnum sé haldið fyrir utan seilingar barna yngri en 36 mánaða, þar sem þau geta innihaldið smáa hluti.

9. Fjarlægið allar umbúðir.

Fjarlægið allar umbúðir, meðal annars plastpoka, merkimiða og annað sem tilheyrir ekki leikfanginu, en geymið leiðbeiningarnar. Tryggið að yngri börn leiki sér ekki með plastumbúðir þar sem þær geta valdið hættu á köfnum. Passið einnig upp á að börn hafi ekki aðgang að rafhlöðum.

10. Kennið börnum ykkar að taka til eftir sig til að koma í veg fyrir slys.

Ekki skilja eftir leikföng í tröppum eða á stöðum þar sem umgengi er mikil.

11. Upplýsið alltaf framleiðendur eða söluaðila og HMS ef þið verðið vör við öryggisvandkvæði leikfanga.

Upplýsingar um hættulegar vörur sem teknar hafa verið af markaði má finna á Safety Gate tilkynningarkerfi ESB, þar á meðal leikföng.

Sjá hér: https://ec.europa.eu/safety-gate-alerts/screen/webReport

12. Munið eftir þessum ráðum varðandi öryggi barna allt árið um kring, ekki einungis um jólin.