Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vekur athygli á hættulegu segulleikfangi „Jeu de construction magnétique classic 42 piéces bocs construction magnétiques“ framleitt af Baiq sem selt var á vefnum, aðallega á Cdiscount. Grunur leikur á að leikfangið gæti verið í umferð á Íslandi.
Þetta segulleikfang er úr viði sem samanstendur af málmkúlum og plasttöngum með seglum á endunum. Leikfangið kemur í plastkassa. Leikfangið er ekki CE-merkt og ber ekki lotunúmer né strikamerki.
Hver er hættan?
Leikfangið hefur litla hluti (litla bolta úr málmi). Barn getur sett þá í munninn og innbyrt þá sem getur leitt til köfnunar ef þeir fara í öndunarveginn. HMS beinir því til allra eigenda þessa veiðileikfangs að hætta notkun leikfangsins þegar í stað.