Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vekur athygli á hættulegum bangsa „Animaux Poupée Bébé Jouet pour Enfants Soft Bear Peluche Toys Peluche Bear Keyring Peluche“ sem selt var á vefnum, aðallega á JOOM. Grunur leikur á að leikfangið gæti verið í umferð á Íslandi.
Þetta er brúnn bangsi í sitjandi stöðu, 10 cm á hæð, með svört plastaugu og hart nef. Leikfangið er ekki CE-merkt.
Lotunúmer: K05T06-L02-10
Tegundanúmer: ATMA12R05-D
Einkennanúmer: 637132f528b53301065d4795
Hver er hættan?
Leikfangið inniheldur litla hluti (plastaugu) sem geta auðveldlega losnað. Þar af leiðandi getur lítið barn sett þau í munninn og kafnað.
HMS beinir því til allra eigenda þessa leikfangs að hætta notkun leikfangsins þegar í stað.
Sjá nánar: https://ec.europa.eu/safety-gate-alerts/screen/webReport/alertDetail/10012620?lang=en