Categories
Innkallanir Leikföng

Innköllun á „Mushroom teether“ leikfangi fyrir ung börn

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vekur athygli á innköllun Amazon á leikfanginu „Mushroom Teether toys for Newborn Babies, Toddlers, infants, Relieve Sore Gum – BPA-Free Chew Toy“ sem selt var á vefsíðu Amazon. Grunur leikur á að leikfangið sé í umferð á Íslandi en hugsanlegt er að það hafi einnig borist hingað til lands eftir öðrum leiðum.

Leikfangið sem hér um ræðir hefur verið til sölu hjá Amazon síðan 24. september 2021.

Ástæða innköllunar er að sveppahaus leikfangsins getur snúist við og skapað mjög þétt sog sem getur valdið hættu á köfnun. Leikfangið getur því verið lífshættulegt og á ekki að vera í notkun undir neinum kringumstæðum.

Hvað á að gera?

HMS beinir því til allra eigenda „Mushroom teether“ að hætta notkun leikfangsins þegar í stað og hafa samband við Amazon eða viðeigandi söluaðila.