Categories
Innkallanir Leikföng

Hættulegur bangsi

Auðvelt er að nálgast trefjaefni leikfangsins vegna veikleika í saumunum. Lítið barn getur sett fyllingarefnið í munninn og kafnað.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vekur athygli á hættulegum bangsa „Ours en peluche 30 cm poupée in tissu décoration de célébration de mariage cadeau“ frá LDD Toy store sem seld var á vefsíðu AliExpress. Grunur leikur á að leikfangið gæti verið í umferð á Íslandi.

Þetta er mjúkt leikfang í formi bangsa brúnn á lit. Leikfangið kemur ekki í pakkningu. Leikfangið er ekki CE-merkt og ber ekki lotunúmer né strikamerki.

Hver er hættan?

Auðvelt er að nálgast trefjaefni leikfangsins vegna veikleika í saumunum. Lítið barn getur sett fyllingarefnið í munninn og kafnað.

HMS beinir því til allra eigenda þessa bangsa að hætta notkun leikfangsins þegar í stað.