Categories
Barnavörur

Hættulegir eldhússtólar fyrir börn

Stólinn er óstöðugur og getur því oltið

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vekur athygli á innköllun á rauðum eldhússtól „Red Kitchen helper“ sem selt er á vefsíðu Amazon. Grunur leikur á að stólinn sem notaður er fyrir börn að aðstoða í eldhúsinu sé í umferð á Íslandi en hugsanlegt er að hann hafi einnig borist hingað til landsins með öðrum leiðum.

Ástæðan fyrir innköllun er að stólinn er óstöðugur og getur því oltið. Litil börn sem eru að nota stólinn geta dottið úr honum og slasað sig.

HMS beinir því til allra eiganda „Red Kitchen helper“ og hafa samband við Amazon eða viðeigandi söluaðila.

Sjá nánar:

https://ec.europa.eu/safety-gate-alerts/screen/webReport/alertDetail/10012024?lang=en