Categories
Barnavörur Innkallanir

Hættulegar stútkönnur innkallaðar

Lokið á könnunni getur brotnað og valdið köfnunarhættu.

HMS vekur athygli á innköllun Serica ehf á lokum á stútkönnum frá Rätt Start. Um er að ræða bleika, gráa og bláar stútkönnur með múmínálfunum á. Lokið á könnunni getur brotnað og valdið köfnunarhættu. Hafa ber í huga að hægt er að nota stútkönnuna án þess að nota lokið. Um er að ræða vörunúmer: 6020, grátt – DG2302, 6021 bleikt – DG2302 og 6022, blátt – DG2302. Stútkannan hefur verið til sölu hjá Dúka, Casa á Akureyri, Árbæjarblóm, Blómabúð Akureyrar og Litlu garðbúðinni.

Samkvæmt tilkynningunni eru forráðamenn beðnir um að taka stútkönnuna tafarlaust úr notkun og skila henni til Serica eða í þá verslun sem varan var keypt í  og fá hana endurgreidda að fullu. Kvittun er ekki skilyrði fyrir endurgreiðslu.