Í janúar síðastliðnum framkvæmdi HMS skoðun á ástandi ljósgjafa, þ.e. ljósapera, í vefverslunum. Skoðað var hvort orkumerkimiði væri til staðar og hvort hlekkurinn „Vöruupplýsingablað“ væri til staðar með viðeigandi upplýsingum. Í skoðuninni voru 69 ljósgjafar skoðaðir og í niðurstöðunum kemur fram að orkumerkingar og vöruupplýsingablöð er mjög ábótavant. Fram kom að 36,23% ljósgjafa reyndust hafa orkumerkingar og 21,47% ljósgjafa reyndust hafa hlekkinn „Vöruupplýsingablað“ með viðeigandi upplýsingum. Við skoðunina fundust glóperur en þær voru bannaðar frá árinu 2012.
Það er á ábyrgð söluaðila að tryggja að orkumerkingin og vöruupplýsingablaðið séu:
- Nálægt verði vörunnar
- Í stærð sem er vel sýnileg og læsileg fyrir neytendur
- Aðgengileg neytendum áður en gengið er frá kaupum
- Aðgengileg hvenær sem er þegar vara er sýnd á vefnum