Innanhúss kerti

Upplýsingar varðandi innanhúss kerti

Kerti þurfa að uppfylla skilyrði laga nr. 134/1995 um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu og mega ekki vera hættuleg heilsu eða eignum einstaklinga.  Kerti sem er ætlað og hannað til notkunar innanhúss þarf að hanna með tilliti til t.d. loftræstingu, gegnumtrekks og hitastigs.

Innikerti eru almenn neytendavara og eiga ekki að vera CE merkt og það þarf ekki leyfi yfirvalda til að selja þau.

Framleiðendur, innflytjendur, dreifingaraðilar og seljendur innikerta bera ábyrgð á að kertin séu örugg.

 

Kröfur um öryggi kerta

Kröfur um brunaöryggi innhúss kerta eru skilgreindar í staðlinum ÍST EN 15493, Candles – Specification for fire safety þar er að finna ítarlegar öryggiskröfur og prófunaraðferðir.

Mikilvæg atriði varðandi öryggi kerta sem hönnuð eru til að nota innanhúss eru m.a.:

  • Stöðugleiki
  • Að notað sé viðeigandi kertavax og kertaþræði
  • Hæð logans (innikerti má loginn ekki vera hærri en 75 mm á teljósum/sprittkerti 30mm)
  • Að leiðbeiningar séu í lagi
  • Viðvaranir

 

Prófunaraðferð og kröfur varðandi sótun eru í staðlinum ÍST EN 15426, Candles – Specification for sooting behavior.  

 

Merkingar og notkunarleiðbeiningar

Innanhúss kertum verða að fylgja þær upplýsingar sem þarf til öruggrar notkunar og viðvaranir ættu að vera á íslensku. Merkingarnar verða annaðhvort að vera á kertinu, á pakkningum  eða fylgja kertinu á merkimiða.

Í staðlinum EN 15494 Candles – Product safety labels er að finna nákvæmar kröfur um merkingu sem eiga að koma fram á innanhúss kertum. Mikilvægar viðvaranir sem á að festa við innanhúss kerti eru:

  • Almennar viðvörunarmerkingar
  • Texti sem segir:
    Látið kerti aldrei loga án eftirlits
    Haltu kertinu frá hlutum sem getur kviknað í.
    Logandi kerti skulu vera  geymd þar sem börn og gæludýr ná ekki til

 

Leiðbeiningarnar geta innihaldið lýsandi myndir og í stað texta er hægt að veita upplýsingarnar með almennum leiðbeiningum og viðvörunartáknum.

 

Gögn til HMS

Til að sýna fram á að varan sé i lagi getur HMS óskað eftir upplýsingum um sölustaði, vottorð, yfirlýsingar um samræmi vöru við reglur og staðla, prófunarskýrslur, tæknilegar upplýsingar og aðrar nauðsynlegar upplýsingar til að sannreyna öryggi vöru.