Categories
Innkallanir Leikföng

Hættulegt Mario leikfang

Keðjan getur losnað auðveldlega. Barn getur sett hana í munninn og kafnað.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vekur athygli á hættulegu mjúkleikfangi sem kallast  „Kirby“ sem selt var á vefsíðu AliExpress. Grunur leikur á að leikfangið gæti verið í umferð á Íslandi.

Þetta er Mario mjúkleikfang með málmkeðju. Leikfangið er u.þ.b. 10 cm á hæð. Leikfangið kemur í glærri pakkningu. Leikfangið er ekki CE-merkt og ber ekki lotunúmer né strikamerki.

Hver er hættan?

Keðjan getur losnað auðveldlega. Barn getur sett hana í munninn og kafnað.  

HMS beinir því til allra eigenda þessa leikfangs að hætta notkun þess þegar í stað.