EB-samræmisyfirlýsing skal innihalda eftirfarandi:
Nr. … (einkvæmt auðkenni leikfangsins).
Nafn og heimilisfang framleiðanda eða viðurkennds fulltrúa hans:
Útgáfa þessarar samræmisyfirlýsingar er einungis á ábyrgð framleiðandans:
Hluturinn sem yfirlýsingin á við um (auðkenning leikfangs með tilliti til rekjanleika). Hún skal innihalda litmynd sem er nægilega skýr til að hægt sé að auðkenna leikfangið.
Hluturinn sem yfirlýsingin á við um og sem lýst er í 4. lið er í samræmi við viðkomandi samhæfingarlöggjöf Bandalagsins
Tilvísanir í viðkomandi samhæfða staðla sem eru notaðir eða tilvísanir í forskriftir sem samræmisyfirlýsing miðast við.
Þar sem við á: tilkynntur aðili … (nafn, númer) … framkvæmdi … (lýsing á afskiptum) … og gaf út vottorðið:
Viðbótarupplýsingar: Undirritað fyrir hönd: (útgáfustaður og dagsetning) (nafn, stöðuheiti) (undirritun)